19.1.2008 | 13:07
Frá Elísabetu Lilju Haraldsdóttur, læknaritara á LSH
Um löggildingu læknaritara
Svo virðist sem misskilnings hafi gætt hvað varðar löggildingu læknaritara. Oft hefur heyrst að starfsheitið læknaritari sé lögverndað en starfið sjálft ekki. Það myndi þýða að Jóna Jóns, sem ekki hefur lokið læknaritaraprófi, mætti ekki kalla sig læknaritara en gæti samt sem áður unnið verkin og haft til þess fullt leyfi. En er það svo?
Svona hljómar 1. gr. reglugerðar nr. 161/1987 um menntun, réttindi og skyldur læknaritara:
„Rétt til þess að kalla sig læknaritara og starfa sem slíkur hefur sá einn, sem til þess hefur leyfi heilbrigðisráðherra.“
Til þess að fá leyfi heilbrigðisráðherra til að starfa sem læknaritari, þarf að skila til ráðuneytisins prófskírteini, staðfestingunni á því að námi í læknaritun sé lokið. Ef ekkert leyfi frá heilbrigðisráðherra er til staðar, má viðkomandi ekki starfa sem læknaritari. Það er ekki flóknara en svo.
Auðvitað hefur sú staða komið upp oftar en einu sinni að ekki hafa fengist læknaritarar í stöður og hafa þá ófaglærðir verið ráðnir í staðinn. Undirrituð var slíkur ritari í tvö ár hér í den. En ávallt hefur verið auglýst eftir læknariturum og skal ófaglærður ritari víkja ef læknaritari sækir um.
Hvernig stendur þá á því að framkvæmdastjórn Landspítala-háskólasjúkrahúss ætlar ekki að fara fram á að ritarar, sem vinna munu við að rita skýrslur af slysa- og bráðasviði í komandi tilraunaverkefni, verði löggiltir læknaritarar? Þegar innt var eftir þessu á fundi þann 8. janúar sl. var svarið: „Við getum ekki gert meiri kröfur til þeirra en til okkar sjálfra“. En þetta snýst ekki um kröfur, réttur okkar læknaritara er lögverndaður. Það skiptir ekki máli hvort spítalinn er að ráða í stöður eða fyrirtæki úti í bæ, sá sem ætlar að vinna við að skrifa sjúkraskýrslur verður að hafa til þess leyfi frá heilbrigðisráðherra, þ.e. vera læknaritari. Ef ekki fást nógu margir læknaritarar til starfa, má auðvitað ráða ófaglærða í þær stöður sem ekki er hægt að fylla, en löggildingin hlýtur að vernda okkur sem hafa þessi réttindi.
Svo virðist sem vinnuveitendur okkar læknaritara kunni engan veginn að meta okkur. Ekki nóg með að launin séu skammarlega lág, heldur lítur út fyrir að þeir ætli að hafa menntun okkar og réttindi að engu. Hvað ætlum við að gera í málinu? Við hljótum að þurfa að bregðast við og vekja yfirstjórn spítalans til umhugsunar.
Til þess þurfum við að standa saman og vera öflugar í að sækja rétt okkar. Samstaða er töfraorðið.
Elísabet Lilja Haraldsdóttir, læknaritari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.1.2008 | 07:55
Læknaritarar á LSH !
Ekki er að furða þótt mörgum læknariturum sé brugðið við fréttir síðustu daga og vikna. Fyrst heyrðust sögusagnir um að það væri verið að stofna ritarafyrirtæki úti í bæ sem ætti að taka að sér ritaraverkefni læknaritara á LSH og að í kjölfarið yrði læknariturum við stofnunin fækkað verulega og þeir fluttir á ritaramiðstöðvar utan spítalans. Svo fóru að heyrast sögusagnir um að lyfjafyrirtæki úti í bæ hefði boðið afnot húsnæðis og tölvubúnaðar til að gera ákveðnum aðilum mögulegt að taka að sér ritaraverkefni læknaritara, bæði á LSH og læknastöðvum í bænum.
Í fundargerð sviðstjónar lækna þann 23. október 2007 er eftirfarandi skráning: .......
Ritaramál. Framkvæmdastjórn samþykkti í morgun að farið verði út í tilraunaverkefni með úthýsingu læknaritaraþjónustu. Áhersla verður lögð á að fækka þeim skýrslum sem safnast hafa upp á slysa- og bráðadeild. Gert er ráð fyrir að öryggiskröfum um aðgengi hvað varðar húsnæði og tölvubúnað verði fullnægt auk þess sem krafist verður fagmennsku á sama hátt og á við um starfsmenn spítalans. Þar sem hér er um tilraunaverkefni að ræða er fyrirhugað að auglýsa kynningarfund um verkefnið þar sem þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu verður gefinn kostur á að mæta. Verkefnið er til eins árs og að því liðnu verður árangur þess metinn og þá hvort og hvernig framhaldið verður. Skili þessi tilraun árangri er gert ráð fyrir því að ritun sjúkraskráa verði boðin út.
Ennfremur lásum við þetta í fundargerð sviðstjónar hjúkrunar frá 24.október 2007: .......
Lagt fram til kynningar bréf dags. 22. október 2007 frá aðstoðarmanni framkvæmdastjóra lækninga og sviðsstjóra lækninga slysa- og bráðasviðs þar sem lagt er til að ritaraþjónusta sviðsins verði boðin út sem tilraunaverkefni. Tillagan var samþykkt.
... og ekki fannst stjórnendum spítalans ástæða til að reifa málið við læknaritara, frekar en að þeim kæmi þetta ekki við. Hefði ekki verið rétt að boða læknaritara á fund og kynna þeim málið? Hefði ekki mátt kanna hvort læknaritarar sæju einhverja lausn á vanda slysadeildarinnar? Hvað svo með aðrar deildar í framtíðinni? Verða þær líka boðnar út?
Finnst einhverjum skrítið þótt hrollur hafir farið um læknaritara á LSH???
Það nýjasta í þessu máli öllu er að þann 8. janúar sl. var haldinn kyningarfundur þar sem afhent voru gögn varaðandi þetta tilraunaverkefni. Þar kemur m.a. fram að:
“Gengið er út frá fagmennsku þannig að ritarar skili villulausum skrám”.
Einnig:
“Gerð er krafa um að ábyrgðarmaður verkefnisins sé löggiltur læknaritari”.
Þótt ábyrgðaraðlinn sé læknaritari er það ekki nóg. Hér tel ég að stjórn Félags íslenskra læknaritara (FÍL) eigi skilyrðislaust að gera kröfu um það að eingöngu löggiltir læknaritarar vinni þessi störf.
Læknaritun er löggilt starfsgrein og hvað þýðir það:
http://www.menntagatt.is/default.aspx?PageID=308 (menntagatt.is / ábyrgð: Menntamálaráðuneytið)
*Hvað er löggilt starfsgrein?*Löggilt starfsgrein er hvert það starf sem löggildingu, leyfi eða aðra jafngilda viðurkenningu þarf til að iðka. Nánar tiltekið er um að ræða starfsemi sem beint eða óbeint er háð því samkvæmt ákvæðum í landslögum eða stjórnsýslufyrirmælum að viðkomandi hafi lokið tilteknu prófi áður en hann hefur störf í greininni. Sjá nánar í tilskipun ráðsins 89/48/EBE
Hvernig geta stjórnendur LSH ætlast til þess að fá faglega unnin verkefni ef þeir eru ekki með fagfólk í vinnu?
“Tilraunaverkefnið hefst 1.maí 2008 - Tilraunaverkefnið verður metið í lok október 2008 - Ef niðurstaða mats gefur tilefni til hefst formlegt útboðsferli læknartunar í nóvember 2008 – Tilraunaverkefni lýkur eigi síðar en 30. apríl 2009”
Hver ætlar að meta hvernig til hefur tekist og hvernig?
Hver er framtíð læknaritara á LSH?
Hver er sýn stjórnenda LSH á framtíð læknaritara hjá LSH?
Telja þeir heila stétt fagmanna óþarfa í rekstri stofnunarinnar?
Hvað eru stjórnendur LSH tilbúnir að gera til að endurvekja traust lækanaritara á stofnuninni og stjórnendum hennar?
Ætla þeir að vera í samvinnu við læknaritara eða ætla þeir að vera áfram í skotgrafahernaði?
Ögmundur Jónasson alþingismaður hefur látið þetta mál til sín taka og virðumst við eiga hauk í horni þar. Það er pistill í Mbl. í dag þar sem þeir Ögmundur og Árni Stefán forstjóri SFR reifa gang mála og verður fróðlegt að sjá og heyra hvað gerist.
Hvað gera læknaritarar nú?
Ég hvet læknaritara til að skoða hug sinn vandlega í þessu máli og senda okkur færslur og álit hér á bloggið okkar.Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2007 | 08:28
Frá Huldu Magnúsdóttur, öldrunarsviði LSH
Halldóra þetta er vel af stað farið, bloggsíðan er til fyrirmyndar hjá ykkur. Nú vil ég nota tækifærið til að hvetja læknaritara á LSH að bretta upp ermar og láta ljós sitt skína um málefni okkar læknaritara. Þessi nýi miðill, "bloggið" er eitthvað sem við verðum að temja okkur og venja okkur við að nota og til að gera bloggið okkar að lifandi miðli, þurfum við að blogga ekki satt?
Tökum okkur til fyrirmyndar og leyfi ég mér að vísa link á síðunni okkar læknaritara á LSH undir erlendir tenglar, þar er síða danskra læknaritara sem eru í sams konar hugleiðingum og við
www.dl-hk.dk/hkwww/landsfor/ddllawww.nsf?OpenÁ síðasta fund mættu 70 læknaritarar og ég er illa svikin ef þið hafið ekki eitthvað fram að færa á bloggið eftir þann ágæta fund. Eitt af því sem ég hjó eftir var brottfallið úr stéttinni sem er að aukast og nú mun á næstu árum verða aukið brottfall læknaritara sem eru að komast á eftirlaunaaldur, hvernig mun okkur takast að manna þær stöður ef endurnýjun í læknaritarastéttinni verður ekki meiri en raun ber vitni. Hvernig viljum við sjá starf og menntun læknaritara þróast. Kannski er kominn tími til að halda málþing um starf okkar læknaritara nú á haustdögum 2007. Allt er þetta raunveruleiki sem blasir við okkar fagstétt, fyrir utan mál málanna þ.e. launamálin, sem bráðnauðsynlegt er að leiðrétta í samræmi við sérhæfingu og menntun.
Gaman væri að sjá umræður þróast á blogginu um málefni sem hljóta að brenna á okkur öllum.
Hulda Magnúsdóttir, skrifstofustjóri öldrunarsviði
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2007 | 13:34
Stelpur á ég að trúa þessu?
Er engin sem hefur neitt fram að færa? Ég bíð spennt eftir smá viðbrögðum, lítilli grein eða klausu, það þarf ekki að vera heil ritgerð, örfáar línur geta komið miklum boðskap á framfæri..
Eru kannski bara örfáar sem kíkja hingað inn? Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að einhverjar okkar séu með fordóma gagnvart bloggi og sjái ekki tilganginn með því að fólk tjái sig gegn um internetið. Blogg getur vakið heilmikla athygli og nýlegt dæmi sem ég get bent á er bloggið hennar Ástu Lovísu sem var mjög mikið lesið og af mjög mörgum. Ef við getum ekki sjálfar kíkt hingað inn gerir það enginn fyrir okkur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2007 | 10:49
Uppgjör fundarins
Um 70 læknaritarar mættu á fundinn okkar í Hringsalnum í gær og mikill einhugur og stemning myndaðist. Lögð var fram tillaga um að vinnuhópurinn, sem skipaður var til að fara ofan í kjaramál læknaritara á LSH á fundinum 27. febrúar s.l., yrði gerður að formlegri stjórn Samtaka læknaritara á LSH og var það einróma samþykkt.
Á fundinum kynnti Elín Helga niðurstöður vinnu undanfarinna mánaða þar sem farið hefur verið ofan í kjölinn á stofnanasamningum okkar og annarra fagstétta innan SFR. Ennfremur var gerð grein fyrir mönnun á læknaritarastöðum innan spítalans, og er rúm 20% stöðugilda mönnuð af ófaglærðum fulltrúum. Í mars s.l. voru 7.5% stöðugilda læknaritara ómönnuð og þóttu þessar upplýsingar sláandi.
Ennfremur var samþykkt með lófataki ályktun þess efnis að leggja bæri áherslu á endurröðun læknaritara í launaflokka við gerð næstu stofnanasamninga og þá verði tekið tillit til menntunar og ábyrgðar í starfi. Þessi ályktun mun verða send Kjaranefnd LSH, yfirstjórn LSH, framkvæmdastjóra SFR auk þess sem hún mun verða birt á heimasíðu læknaritara á LSH.
Ég fór svo yfir bloggið, tilgang þess og mikilvægi og hvernig læknaritarar á LSH gætu nýtt sér bloggið sem upplýsingamiðil og umræðuvettvang í baráttu fyrir bættum kjörum.
Okkur finnst mjög ánægjulegt hve margar mættu og þökkum við ykkur kærlega fyrir stuðning og hvatningu við það sem stjórnin er að gera. Það er alltaf gott að fá jákvæð viðbrögð og er stuðningur ykkar svo sannarlega hvatning fyrir okkur að halda áfram á sömu braut.
Nú fer í hönd tími sumarleyfa og því er sjálfgefið að ekki verður jafn mikill gangur í þessari vinnu í sumar og verið hefur en við stefnum að því að taka upp þráðinn í haust af fullum krafti og stefnum jafnframt að því að vera í góðu sambandi við tengiliðina og ykkur, því eins og svo oft hefur komið fram er engin keðja sterkari en veikasti hlekkurinn og viljum við lifa í þeirri trú að við náum einhverri leiðréttingu okkar mála ef baklandið heldur áfram að vera eins sterkt og það birtist á fundinum í gær.
Ég vil enn og aftur minna ykkur á að ef einhver vill koma pistli á framfæri þá má senda mér hann á tölvupósti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.5.2007 | 15:13
Fundarboð!
Vekjum athygli á áríðandi fundi hjá Samtökum læknaritara á LSH.
Fundurinn verður haldinn í Hringsalnum á Hringbrautinni fimmtudaginn 31.05.2007 kl. 15.
Mikilvægt er að sem flestar sjái sér fært að mæta!!.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.5.2007 | 14:01
Umræðuvettvangur læknaritara um launakjör á LSH
Sælar dömur og velkomnar á bloggið.
Við í launanefndinni höfum nú sett á laggirnar opna vefsíðu þar sem við getum "talað saman" og skipst á skoðunum.
Þið getið sent inn athugasemdir og spjallað þar, ef þið hafið eitthvað sem þið vilduð setja sem bloggfærslu sem birtist þá strax á síðunni, getið þið sent mér tölvupóst og ég skal setja það inn um hæl.
Vonandi nýtist þessi síða okkur vel í komandi baráttu!
Sameinaðar stöndum við!
Halldóra F Sigurgeirsdóttir, Kvennasviði LSH og launanefnd læknaritara á LSH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)



halldoraf

